15.04.2012 23:30
Súpureiðtúr
Súpureiðtúr - Sumardaginn fyrsta.
Hestamannafélagið Freyja stefnir að súpureiðtúr á sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 19. apríl á Fáskrúðsfirði. Lagt verður af stað frá hesthúsahverfinu á Fáskrúðsfirði kl. 14, fararstjóri verður Gestur Stefánsson. Eftir reiðtúrinn verður boðið upp á kjötsúpu og brauð frá Sumarlínu á vægu verði. Freyjufélagar hvattir til að fjölmenna og aðrir hestamenn að sjálfsögðu boðnir velkomnir. Til að geta undirbúið þetta sem best förum við fram á að fólk skrái sig hjá okkur, Esther sími 661 6170 og Vala 843 7774.
30.03.2012 22:06
Ótitlað
Sæl öll
Gerð var villa í dagskráni um páskareiðina en ég er búin að laga þetta... Sjá fyrir neðan en sagt var að hún yrði 6.apríl en hún er sjálfsögðu 7.
kv. Særún
28.03.2012 20:34
Ótitlað
Dagskrá 2012
v
31. Mars reiðtúr á Reyðarfirði kl 13:00
v 7. Apríl Páskareiðin á Eskifirði.
v
19. Apríl súpureiðtúr á Fáskrúðsfirði kl. 13:00 (kjötsúpa í
boði eftir reiðtúrinn)
v
5.Maí opið hús fyrir grunnskólanna kl. 10:00 -13:00
v 17. Maí
vorleikar (nánari tímasetning og staðsetning auglýst síðar)
v 26. Maí
hvítasunna kynjareið á Reyðafirði
v 9. Júní
kvennareið
v Júlí
möguleg hestaferð
Skrifað af Særún
22.06.2011 18:15
Landsmót 2011...hið minna
Á laugardaginn, 25,06 verða vorleikar Freyju og verða þeir haldnir að þessu sinn að Tungu á Fáskrúðsfirði og byrjar mótið kl 14.
Mótið byrjar með hraðabraut(smali) og á eftir verður keppt í tölti. Ef skráning verður mikil verður séð til um að skifta í vana og óvana. Medalíur fyrir efstu þrjá í öllum flokkum.
Ef einhver tími verður eftir er Nonni alveg vitlaus í að leggja á skeið við einhverja frambærilega.
Skráning verður á staðnum og eru keppendur beðnir um að mæta tímanlega.
Skráningagjald verður 1000 kr á keppanda í eina þraut. Ef sami aðili ætlar í báðar þrautir er það kr 1500 kr. Endilega takið með seðla.
Þáttakendur á reiðnámskeiðinu sem fer fram núna á Eskifirði fá frítt á mótið og eru þeir óspart hvattir til að skrá sig til leiks.
Grill og glens á eftir
Sjáumst sem flest og höfum gaman, stjórnin.
Það eru ekki allir sem hafa hestakerru til umráða og ætlum við að biðja ykkur um að bjóða mönnum laus pláss og ef einhver er svo góður að geta farið fleiri en eina ferð er um að gera að hver og einn greiði eitthvað smávægilegt fyrir viðvikið.

Skrifað af Formaður
18.06.2011 23:08
Reiðnámskeið
Athugið að skráning er hafin á reiðnámskeið sem á að halda 20-24 júní ef næg þáttaka fæst. Skráningar eru í síma 6616170 Ester eða 7722329 Vala
11.06.2011 21:58
Reiðnámskeið
Þar sem það er misjafnlega vel tekið í að reiðnámskeið verði haldið í ágúst höfum við tekið á það ráð að gera skoðanakönnun hér á síðunni. Gaman væri ef sem flestir gætu tekið þátt í henni svo við getum komist á móts við sem flesta sem vilja komast á reiðnámskeið.
Kveðja stjórn Freyju :)
Kveðja stjórn Freyju :)
28.05.2011 13:43
Reiðnámskeið
Vegna fjölda áskorana höfum við í stjórninni verið beðin um að endurskoða tímann fyrir reiðnámskeiðið sem var áætlað um miðjan ágúst. Ný hugmynd er komin á borðið að halda reiðnámskeiðið 15/6 til 19/6. Við viljum gjarna heyra hvort meiri áhugi er fyrir því hjá félagsmönnum Freyju. Endilega látið okkur vita hvað ykkur finnst með að hafa samband við Ester 6616170 eða Völu 7722329 :)
Skrifað af Vala
- 1
Flettingar í dag: 8
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 4
Gestir í gær: 3
Samtals flettingar: 13714
Samtals gestir: 5414
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 22:08:47